dæmigerðar pælingar
10.01.2007 13:48:18 / Anna

anna-kata.blog.is

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 20:50:10 / Anna

TATTOO

    Þessa dagana sit ég föst í próflestri sem gengur svona upp og ofan, alveg svakalega þurrt og leiðinlegt efni :(
    Mér fannst alveg stór sniðugt að brjóta aðeins upp daglegt líf og skellti mér í tattoo  :haha: var reyndar búin að panta tíma í það fyrir nokkrum vikum :S
    En allavega er ég komin með rosalega flott tattoo á mig, var frekar mikið vont en samt ekkert sem drepur mann hihi ;)

Farin aftur í bækurnar

ciao

Annka

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 20:06:43 / Anna

?

:evil: :cry: 8| :frown:
Er bara alls ekki viss hvernig mér líður!!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 15:06:25 / Anna

Desember

    Nú er árið alveg að fara að vera búið og próflestrartímabilið hafið eina andskotans ferðina enn 8| en við því er nú ekkert að gera, er líka bara í einu prófi, en á að skila tveimur verkefnum nú í desember þannig að ekki er hægt að segja að maður sé beint að taka því rólega. Fyrir utan þá staðreynd að ég er að taka mér tíma til að blogga, ber ekki vitni um mikið stress á bænum;) Svo að sjálfsögðu þurfti maður að fara út í að taka að sér allt of mikla vinnu núna í þessum mánuði svo maður hefði nú alveg örugglega nóg að gera, gengur ekki að maður slappi af í þessum mánuði, þá hefði ég enga afsökun fyrir að nenna ekki að skrifa jólakort eða vanda mig við að pakka inn jólagjöfunum :haha:

    Nýjustu fréttir eru:
  • Druslan er aftur komin í lag og gengur eins og vanalega :haha:
  • Fékk mína fyrstu stöðumælasekt á laugardagsmorgun þar sem ég fór keyrandi í bæinn á föstudagskvöld og ætlaði bara að stoppa stutt og fara svo edrú heim, en það lengdist aðeins tímin sem ég stoppaði svo ég ákvað að fá mér smá í glas og svo aðeins meir og svo bara pjonku mikið meira 8)
  • Er búin að borða næstum því heilan kassa af mandarínum á tveimur dögum:S
  • Litla systir varð 19 ára í gær, jemerías maður gæti farið að þurfa að tala við hana eins og hún sé fullorðin en ekki 10 ára;)
  • Held að Kristrún sé týnd af yfirborði jarðar þar sem ég er ekki búin að heyra frá henni í heila eilífð :S
  • Er búin að kaupa næstum allar jólagjafirnar sem ég þarf að kaupa þetta árið  :haha: og finnst það helvíti góður árangur
  • Fékk vöfflur í forrét og súkkulaðiköku í eftirrétt í sunnudagskvöldverðinum :haha:
  • Gullfiskarnir eru enn á lífi 
og svona til að summera þetta upp á er ég bara svakalega ánægð og hamingjusöm
:haha:

Ciao
Anna Kata



» 7 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 08:53:13 / Anna

#### this

#&%"#/())/%&$## DRUSLAN :evil:


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 13:32:19 / Anna

Taka þátt

    Hunskist nú til að kjósa krúttin mín. :haha: Vera memm og svona 

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 08:35:04 / Anna

.

GEISP!!!!(ANDVÖKUNÓTT):cry:

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 18:18:53 / Anna

aktíjón

        Stutt ágrip af atburðum dagsins:
Vaknað
Umræðutími
Vinna í hópverkefni
Kem í Kópavogsfangelsi (voðalega mikið af vörðum á staðnum)
Byrja viðtal í fangelsinu (kemur í ljós að það hafði komist upp um mikla fíkniefnaneyslu í fangelsinu daginn áður)
Viðtal stoppar (hundarnir þurfa frið til að leyta í herberginu)
Viðtal heldur áfram í heimsóknarherberginu (aftur stoppað vegna leytar í herberginu)
Klára viðtal
Hringi í bankann
Sit þrjá fyrirlestra á ráðstefnu um rannsóknir í félagsráðgjöf
Fer heim
GÁG kemur
Hringi í bankann
Hringi í bankann
Hringi í bankann
Hringi í bankann
og aftur og aftur og aftur,
loks kemst ég í bónus
fer í 10/11 að kaupa pylsubrauð, voru búin í bónus
Skrifa þetta

Framundan
Sækja MG
Skutla GÁG
Leikur á milli Tindastóls og ÍR
Sækja Big á flugvöllinn
óvíst eftir það

Alveg heljarins dagur það er alveg á hreinu

Anna Kata

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 13:05:57 / Anna

Örfréttir

Jæja, helgin tókst svona glimmrandi vel, út að borða í tilefni afmæli AS, djammað tvö kvöld,:haha: eitt veðmál :haha: ein ráðstefna,:Dsofið fram að hádegi 8)(einu sinni) einu sinni vaknað fyrir allar aldir,:S kaffihús,:) bíó,:) fékk á mig diskó friskó frá löggunni :$ og svo koma frænka á mánudeginum, úff maður hefur bara varla tíma til að anda..
á að skila tveimur verkefnum á föstudaginn, er alveg að vera búin með fyrra verkefnið (átti tæknilega að skila því síðasta föstudag, en fékk frest vegna mjög svo skiljanlegra ástæðna) og svo er bara að puðast við hitt verkefnið á morgun, sérstaklega ef ég ætla að komast á körfubolta leik með MG annað kvöl.

PS ekki reykja, sá viðbjóðslegustu íbúð sem ég hef nokkurn tíma séð í gær, held að veggirnir séu málaðir hvítir en þeir eru sko löngu hættir að líta svoleiðis út..

ciao Anna

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 13:28:18 / Anna

Jibbbbíí

Búin að eignast nýja frænku :haha::haha::haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 12:25:38 / Anna

Einhvern tímann er allt fyrst

    Í morgun þurfti ég í fyrsta sinn að skafa rúðurnar á bílnum mínum:haha: stuð að fá að gera það svona í fyrsta skipti, verð samt örugglega farin að bölva því fyrir jól hehehehhehehe svona er nú mannskepnan skrítin það sem okkur finnst gaman í dag er leiðinlegt á morgun..

en allavega vona að mér finnist þetta gaman sem lengst, því ég á örugglega eftir að þurfa að gera það oft,

P.S. DJÖFULL ANDSKOTI VAR KALT Í MORGUN ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 23:01:12 / Anna

KOMA SVO

    Endilega takið þátt í nýju könnunni er ekki alveg viss hvort ég á að fá mér fleirigæludýr, langar samt svaka mikið í kúrudýr :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 11:34:58 / Anna

Ég skal þá bara vera það!!!!

Hér kemur einn massa bitur og pirraður texti þannig ef þú ert ekki hörð sál skaltu ekki lesa áfram.....

Ég er með eitt stykki hálfvita (kvenkyns) kennara sem viðukennir ekki góðar hugmyndir bara af því hún fékk hana ekki. Að svona hegðun komi frá fullorðinni manneskju er alveg út í hött, hefði búist við þessu af 10 krakka.

Leiðbeinandinn minn kemur ekki til landsins fyr en í lok næstu viku þannig að ég hef enn ekki getað byrjað á undirbúningi fyrir ritgerðina mína, Arrrrgggg massa pirringur í gangi yfir því.

Þjáist mikið af hauseyming þessa dagana sem lýsir sér í því að mér finnst eins og einhver hafi sett þvingu á hausin á mér og langar mig helst bara að liggja með augun lokuð sem hefur orsakað að ég hef ekki verið eins dugleg eins og ég hefði vilja/vonað, svo blandast þetta saman við leti og afneitun um að vera byrjuð í skóla og þurfa að vera að læra og því hefur einstaklega litlu verið áorkað upp á síðkastið.

Er alveg brjáluð yfir þessu þjófapakki sem virðist búa hér í blokkinni, í sumar hvarf æðislega góði regnjakkinn minn úr þvottahúsinu og núna er nýja, stóra og rándýra forðan mín horfin úr glugganum inn á baði, ég tek það fram að glugginn var næstum lokaður í morgun bara örlítil rifa á honum. Einn hver hefur hafti fyrir því að opna gluggan alveg og teygja sig inn og taka brúsan, heltvísti drullusokkur ( útiloka hvorugt kynið). er alveg brjáluð og alveg að sjóða uppúr hjá mér er svo reið yfir þessu. ANDSKOTINN HAFI ÞETTA!!!!!!!!!!!

já og svo er þessi helvítis rigning alveg að gera mig vitlausa
Einnig að missa þolinmæðina á þurrkublettinum á hökunni sem vill engan veginn fara.

vona að þetta hafi verið nógu biturt og pirrað fyrir ykkur krúttin mín,
auglýsi einnig eftir einhverjum sem nennir (ætti virkilega að segja vill þar sem ég er að reyna að venja mig af því að segja nenniru, en ætla samt að leyfa því að standa þarnfa þar sem ég læt útskýringar fylgja með) að þrífa bílinn minn.

over and out
Anna bitur og massa pirruð og að missa þolinmæðina

P.s. er samt svaka ánægð og létt í lund þessa dagana :haha:

» 11 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 14:37:02 / Anna

JÆja

    loksins komin aftur :haha: veit þið eruð búin að sakna mín..
Mér tókst loksins að komast yfir ógeðið á tölvunni sem hafði þróast síðasta vetur, alltof mikil notkun og ég bara fékk nóg og þurfti smá frí frá þessari elsku, en við erum komin saman aftur :haha:
Skólinn byrjar á mánudaginn með starfsþjálfun, verð í svoleiðis alla mánudaga og þriðjudaga fram að jólum, er massa spennt og held að þetta verði svaka áhugavert og gaman, það vottar samt fyrir smá stressi yfir því hvort maður eigi eftir að standa sig vel, ef maður gerir það ekki þá kemst maður ekki yfir á 4 árið.
Er búin að færa BA ritgerðina mína yfir á þessa önn, er ekki búin að fá leiðbeinanda en það hlýtur að fara að gerast 8) SKO hver myndi ekki vilja leiðbeina mér hehe..

held þetta sé bara ágætt núna, lofa að vera duglegri og standa mig betur :$

» 8 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 14:05:13 / Anna

Dýraðardagur

    ég er búin að kaupa mér bíl, hann er gamall og skrítinn á litinn,
en ég fékk hann á spottprís og er mjög sátt
til hamingju ég
:haha:

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2